Vínhúsið Alta Vista í Mendoza í Argentinu er nú aftur mætt til leiks á Íslandi eftir ansi margra ára hlé, eitt af nokkrum vínhúsum Argentínu sem eru í franskri eigu. Þetta er standard-Cabernet-vínið frá Alta Vista. Það er djúprautt og ungt, áherslan á kröftugan, og dökkrauðan ávöxt, plómur og kirsuber eru áberandi í nefi, örlítið kryddað, mjúkt og slétt, mild eik í bakgrunninum.
70%
2.199 krónur. Mjög góð kaup. Með lambakjöti eða nauti.
-
7