Amalaya Tinto de Corte 2015

Vínin frá Amalaya koma frá háfjallahéraðinu Salta nyrst í Argentínu en þar er að finna þær ekrur sem eru hvað hæst yfir sjávarmáli í veröldinni. Vínhúsið er í eigu Hess og með þeím nútímalegri og alþjóðlegustu á svæðinu.

Tinto de Corte er blanda úr þremur þrúgum, fyrst og fremst Malbec en einnig örlitlu af Tannat og Syrah. Ungt með smá bláma í lit, ávöxturinn dökkur, þarna eru plómur og berjagrautur, en einnig fersk angan af blómum og jörð, töluvert kryddað. Mild tannín í munni, þægilega mjúkt með ferskum og fínum ávexti,

80%

2.499 krónur. Frábær kaup á þessu verði. Með lambi og nauti.

  • 8
Deila.