Attimo er eitt af vínum Tenuta di Sticciano sem er vinsælt agriturismo suður af Flórens. Það er lífrænt ræktað og í flokknum Rosso di Toscana þar sem það er gert úr þrúgunum Syrah og Merlot en ekki hinum dæmigerðu þrúgum Chianti-héraðsins.
Vínið er farið að sýna byrjandi þroska, nokkuð kryddaður, mildur og dökkur ávöxtur í nefi, leður og jörð, smá fjós. Þægileg og mjúk áferð í munni, mild og fín tannín og ágætis sýra. Gott matarvín.
80%
3.890 krónur. Mjög góð kaup.
-
8