Poggio al Tesoro Il Seggio 2014

Allegrini-fjölskyldan er með merkustu vínfjölskyldum Ítalíu og þekktust fyrir samnefnt vínhús í Veneto. Syðst í Toskana, nánar tiltekið í Bolgheri, hefur hún verið að byggja upp vínhúsið Poggio al Tesoro þaðan sem þetta vín kemur. Il Seggio er eitt af nýjustu vínum hússins og þetta er fyrsti árgangur sem er framleiddur af því. Það hittir hins vegar beint í mark frá byrjun. Bolgheri-vínin eru yfirleitt mikil um sig og oftar en ekki eru þau gerð úr Bordeaux-blöndum. Það á við um Seggio sem segja má að segja eins konar „hægri-bakka“-blanda – þ.e. með nærra hlutfall af Merlot (40%) en Cabernet Sauvignon (30%). Þeim til aðstoðar eru svo Cabernet Franc og Petit Verdot.

Vínið er þétt og dökkrautt, kirsuber og sólber, ferskt, nokkuð áberandi eik, sætir kaffitónar úr henni. Ávöxturinn er djúpur, sýra og tannín ferskt, vínið nokkuð míneralískt. Hörkufínt núna en endilega umhellið 1-2 klukkustundum fyrir neyslu. Þetta er líka vín sem tvímælalaust má geyma – 1-2 ár.

100%

3.190 krónur. Frábær kaup á þessu verði. Vín fyrir grillað T-Bone og Porterhouse.

  • 10
Deila.