Cantine Torri var upphaflega vínsamlag bænda í Montepulciano-héraðinu í suðurhluta Ítalíu, stofnað fyrir hálfri öld. Fyrir nokkrum árum festi hins vegar Gasparanni-fjölskyldan kaup á Torri og réðst í miklar fjárfestingar á ekrum og í víngerð auk þess að færa vínræktina yfir í lífrænar aðferðir. Nokkur vín frá þessu athyglisverða vínhúsi eru nú fáanleg í vínbúðunum, hvert öðru betra.
Hvítvínið Torri Bakan er gert úr Trebbiano d’Abruzzo-þrúgunni. Það er fölgult með þéttum og sítrusmiklum ilm, sítrónubörkur og smá „lemon curd“ og gular melónur í bland við blómaangan, míneralískt. Það er einstaklega þéttriðið, smjörkennt og feitt með þykkum og löngum ávexti en jafnframt góðri sýru. Ekta sjávarréttavín t.d. fyrir humarpasta.
2.290 krónur. Frábær kaup. Mikið vín fyrir þetta verð. Með skelfisk og pasta.
-
9