Castagnedi-bræðurnir sem reka víngerðina Tenuta Sant’Antonio framleiða með betri vínum Valpolicella-svæðisins. Vínið Monti Garbi er svokallað Ripasso (og þar að auki Superiore) en það eru Valpolicella-vín sem eru látin fara í gegnum eins konar síðari gerjun með því að þrúguhrati sem verður afgangs eftir Amarone-víngerð er bættt við.
Monti Garbi er dimmrautt, nefið nokkuð kryddað, lakkrís, reykur og þroskuð kirsuber, cassis-líkjör og dökkt súkkulaði. Ávöxturinn í munni er nokkuð sætur, vínið heitt, þykkt og kryddað.
80%
2.799 krónur. Frábær kaup. Með ostum og bragðmiklum pastaréttum.
-
8