Muga Reserva 2016

Bodegas Muga er eitthvert besta dæmið um vínhús sem framleiðir hefðbundin, stórkostleg Rioja-vín. Muga-fjölskyldan hefur framleitt vín í Haro í Rioja Alta frá árinu 1932 og þessi vín eru í hugum margra allt það sem Rioja á að snúast um. Stór, mikil og eikuð vín sem eru fullkomin með góðri nautasteik. 2016 Reservan er frábær, þetta er klassískt, tignarlegt, enn mjög ungt rauðvín. Í nefinu dökkrauður ávöxtur, viðurinn er framarlega, kakó og sæt krydd, styrkurinn liggur ekki síst í strúktúrnum, svakalega þéttriðið, þykkur ávöxtur, mikil, fersk sýra og tannín sem halda utan um. Vín sem verl má geyma.

90%

4.299 krónur. Frábær kaup. Með nautakjöti, lambi, hreindýri.

  • 9
Deila.