Það verður mikið um að vera hjá Búrinu í Nóatúni, einhverju dásamlegustu sælkeraverslun landsins. Þá verða liðin fjögur ár frá því að Eirný Sigurðardóttir opnaði verslunina, nokkrum dögum áður en íslenska efnahagskerfið hrundi.
Það stöðvaði þó ekki þennan mikla eldhuga og Búrið hefur fest sig í sessi enda með mesta úrval osta sem í boði er hér á landi.
Eirný hóf innflutning á glerkrukkum og seldi til smáframleiðanda í því skyni að efla úrval og útlit á handgerðri gæðavöru. Í kjölfarið kom Búrið sér upp eigin framleiðslueldhúsi og þar eru nú framleiddar yfir 15 mismunandi tegundir af sultum og kryddsultum sem eru til sölu í Búrinu og í nokkrum verslunum Hagkaups.
Á öðru starfsári Búrsins var settur upp ostaskóli og síðastliðinn vetur var settur upp líklega stærsti útimatvörumarkaður Íslandssögunnar í samvinnu við Beint úr býli. Og Eirný er ekki hætt. Hún hefur tekið húsnæðið við hliðina á Búrinu á leigu og er að breyta því þannig að það rúmi starfsemi ostaskólans.
En afmælisdagskrá Búrsins lítur annars svona út:
Föstudagur 28/9
KL 15:00 – 18:00
Doddi og Lísa frá MATARBÚRINU
http://hals.is/matarburid.php mæta með sítt fyrsta flokks ungnautakjöt af Galloway kyni sem hefur þá sérstöðu að vera grasfóðrað og vel hángið. Á boðstolum verða líka heimalagaðar bratwurstpylsur og haustlegar kryddsultur.
Bændurnir Gauti Gunnarsson og Guðbjörg Jónsdóttir á Læk í Flóahreppi og eigendur frábæru bændaverslunarinnar BÚBÓT í Þingborg ætla að koma og selja himneska ísinn sem þau framleiða. Grjónagrautís, jarðaberjaís með berjum frá Silfurtúni, bismarksís og íslenskur hunangsís.
MEKKA Vín koma með vín ráðleggingar og leyfa okkur að smakka nokkur góð til að hafa með steikinni..
BÚRVERJAR eru búinn að fá til sín í tilefni dagsins 48kg hjól af 24 mánaða gömlum Parmigianno Reggiano en ekki nóg með það heldur erum við með heilt Serrano hráskinku læri sem við munum handskera fyrir viðskiptavini okkar.RABARBÍA mættir með sínar frumlegu rabarbara VÖRUR..
Laugardagur 29/9
KL 14:00 – 17:00
OSTAR OG HUNANG
Maggi og Heiða hunangsbændur á SVÆÐI sem er nyrsta býflugnabú á Íslandi koma og fræða okkur um býflugnarækt og þeirra frábæra hunang sem ber vott af lyngi, smára og fiflum í bragði.
Rjómabúið ERPSSTADIR ætla að bjóða til sölu vinsæla kumin ostin sem þau hófu framleiðslu á fyrir einu ári síðan en einnig nokkrum ostanýjungum
Stella mjólkurbóndi á Jörfa í Viðidal mætir með SÆLUOSTA ÚR SVEITINNI frábærir ferskostar sem hún framleiðir af ást og aluð.
Vigdís vinkona okkar sem rekur FJÓSHORNIÐ á Egilsstöðum býr til frábæran fetaost sem verður á boðstolum
Stephane Aubergy kemur og kynnir okkur fyrir nokkrum góðum vínum sem fyrirtæki hans VÍNEKRAN flytur til landsins