Emilio Moro er einn helsti framleiðandi svæðisins Ribera del Duero á Spáni. Duero er auðvitað spænska heitið á fljótinu sem að heitir Douro á portúgölsku en samnefnt víngerðarhérað er þekktast fyrir að vera upprunasvæði púrtvínanna. Moro er einn margra sem hefur verið að uppgötva þá miklu möguleika sem að felast í hefðbundinni rauðvínsgerð í Douro og þá með því að nota sömu þrúgar og eru uppistaðan í púrtvínum, s.s. Touriga Nacional.
D+D stendur fyrir Drinks+Dreams og er samvinnuverkefni Moro og Douro-vínfyrirtækisins Sogevinus. Þá er einn þekktasti portúgalski knattspyrnumaður allra tíma, Luis Figo, meðal eigenda. Markmiðið var að gera vín úr Douro-þrúgum með aðferðum Duero.
Þetta er svakalega heitt, kryddað og glæsilegt vín. Sveskjur, rúsínur, þykk og mikil eik, angan af balsamik, í munni þykkur, sætur ávöxtur, rjómamjúkur. Þetta er hrikalega flott vín, ræður hæglega við íslenska villibráð.
3.699 krónur. Mjög góð kaup.