Tenuta delle Terre Nero Rosso 2010

Vínrækt á sér langa sögu í hliðum eldfjallsins Etna en var nánast útdauð þar til að nokkrir eldhugar fóru að endurlífga hana fyrir nokkrum árum. Fremst í þeim hópi voru þau Marc og Iano de Grazia eigendur Tenuta delle Terre Nero.

Etna-vínin koma frá Sikiley en það er að mörgu leyti skynsamlegt að ýta öllum þeim hugmyndum sem að maður hefur um sikileysk vín til hliðar áður en að maður smakkar þau. Þau eiga voðalega lítið sameiginlegt með þykku og  ávaxtaríku Nero d’Avola vínunum sem flestir tengja við Sikiley. Það væri eiginlega nær að líta til svæða á borð við Búrgund hvað samanburð varðar.

Engar aðrar vínekrur í Evrópu eru jafnhátt yfir sjávarmáli og því er loftslagið allt annað en ananrs staðar á Sikiley. Þetta er ekki „heitt“ svæði þó að það sé langt í suðri. Jarðvegurinn er sömuleiðis mótaður af eldsútbrotum Etnu og þrúgan sem þarna er notuð í rauðvín, Nerello, svipar að mörgu leyti til Búrgundarþrúgunnar Pinot Noir.

Þægileg angan af rauðum berjum, rifsberjum,  trönuberjum , rósum og kryddi. Þetta er fínlegt og elegant vín, ávöxturinn flókinn og rennur vel saman við milda eik. Gefið víninu tíma til að opna sig. Með fínlegum mat, prufið t.d. að leyfa góðri nautasteik að njóta sín með þessu víni án þess að hafa bragðmikið meðlæti eða sósu með.

2.950 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.