Louis de Grenelle er gamalgróinn framleiðandi vandaðra freyðivína í Loire-dalnum í Frakklandi og þetta er freyðivín frá honum eða Crémant de Loire úr þrúgunum Chenin Blanc og Chardonnay auk rauðu þrúgunnar Cabernet Franc.
Mjög fersk og flott angan, míneralísk, sítrus og perur, vottur af hitabeltisávöxtum, kex. Þægilega ferskt, með djúpum og góðum ávexti. Vandað og gott freyðivín.
2.990 krónur.