Perur eru ekki algengar í kokkteilum en eru svo sannarlega ríkjandi í þessum flotta kokkteil sem Aðalsteinn Jóhannesson setti saman fyrir okkur.
3 cl Absolut Pears
1,5 cl De Kuyper Sour Apple
1,5 cl De Kuyper Pisang
6 cl perusafi
Safi úr einum og hálfum lime-bát.
Allt hrist saman í kokkteilhristara með klaka og sett í glas, fyllt upp með klaka.