Domaine de Malandes Chablis 2008

Þessi Chablis frá Domaine de Malandes er ferskur og aðlaðandi og ágætt dæmi um hvers vegna vínin frá Chablis njóta jafnmikillar hylli og raun ber vitni. Skarpur og hressandi sítruskeimur ásamt sætum ferskjum í nefi, góð  titrandi sýra og míneralískur undirtónn í munni.

Reynið með til dæmis laxamús með hvítvínshlaupi.

2.599 krónur. Góð kaup.

 

Deila.