Klaustrið Badia a Passignano gerir þetta vínhús að þeim tignarlegri í Toskana og Chianti Classico-vínið sem markgreifinn Antinori framleiðir á ekrum klaustursins er ekkert slor.
Vínið hefur þunga og klassíska Chianti-angan, nokkuð eikaða með kaffi- og vanillutónum, dökkum þroskuðum skógarberjaávexti og villibráðarblóði í nefi. Þykkt og samþjappað í munni, tannín farin að mildast. Langt og endingarmikið.
Reynið með nautasteik eða villibráð á borð við hreindýr og rjúpu.
5.699 krónur