Krydd eru ómissandi við matargerð og nú hafa bæst á markaðinn nýtt íslenskt salt og kryddblröndur. Það er fyrirtækið Kryddveislan, sem sett hefur á markað nokkrar kryddblöndur og að auki íslenskt salt, sem unnið er undan sjávarbotni Reykjaness.
Nokkur kryddanna sem notuð eru í blöndurnar eru lífrænt ræktuð, s.s. sítrónubörkur, sem notaður í sítrussalt og rauðbeðuduft, sem er blandað saman við íslenskt sjávarsalt undir heitinu Hátíðarsalt.
Þá er hægt að fá hreint Reykjanessalt, en það er gróft og bragðmikið. Saltið er með góða samsetningu salts og steinefna og má nefna að hlutfall natríum klóríðs er aðeins 71% sem gjarnan er um 100% í öðrum söltum. Helstu steinefnin í saltinu eru magnesiumklórið, magnesiumsúlfat, kaliumklóríð og kalsíum. Saltið er því heilsusamlegra en mörg önnur sölt sem eru með hærra natríumklórið innihaldi og er auk þess bragðmikið þannig að ekki þarf að nota mikið af því.
Aðrar forvitnilegar kryddblöndur frá Kryddblöndunni eru svartur pipar með rósapiparkúlu, villibráðar espresso-krydd, sem að tæpum þriðjungi er blandað möluðu Kaffitárskaffi ásamt einiberjum fennel og úrvali grænna krydda, og loks kalkúnakrydd, sem er hefðbundin kryddblanda með salvíu og fleiri grænum kryddjurtum. er nýtt fyrirtæki sem býður upp á bæði íslensk salt sem unnið er undan sjávarbotni Reykjaness og hátíðarlegar kryddblöndur með nýstárlegu innihaldi. Kryddin sem notuð eru hjá Kryddveislunni eru keypt hjá viðurkenndum birgjum sem eingöngu selja hrein gæðakrydd. Nokkur kryddin eru lífræn sbr. sítrusbörkurinn, rauðbeðuduftið og salvían.
Kryddin má fá í ostaversluninni Búrinu í Nóatúni, hjá Kaffitári, kokku, Duka, Hjá Jóa Fel í Holtagörðum og í Garðabæ og hjá bændamarkaðnum Frú Laugu við Rauðalæk.