Havana Espresso

Hvers vegna ekki að sameina kokkteil og kaffi eftir matinn? Það er hægt að nota kaffi með margvíslegum hætti í kokkteila. Hér notum við sterkt espresso og dökkt romm sem grunn.

3 cl Havana Club 7 Anejo

1 cl De Kuyper Creme de Cacao (ljóst)

1 cl De Kuyper Creme de Café eða Kahlúa.

1 tvöfaldur espressobolli

Fyllið kokkteilshristara með klaka. Hellið rommi, líkjörum og kaffi út í. Hristið vel og lengi til að kæla kaffið og ná góðri froðu. Hellið í kokkteilsglös. Skreytið t.d. með súkkulaðispæni.

Deila.