„Ég rak nefið inn í ostaverslunina Búrið um daginn til að birgja mig upp fyrir helgina af góðum ostum. Í frystinum hjá þeim voru girnilegar nautapylsur frá Matbúrinu. Við skelltum þeim á grillið og borðuðum með bestu lyst. Meðlætið var ekki flókið heimatilbúið hrásalat og kartöflusalat.
Mér finnst hrásalat (coleslaw) alveg rosalega gott en það er ekki oft sem ég nenni að gera það frá grunni. En nú voru til nýjar gulrætur í matvörubúðinni og hvítkálið er alltaf á góðu verði þannig að ég sló til. Meðfylgjandi uppskrift er með þeim betri sem ég hef prófað:
Rífið niður gulrætur og hvítkál eins mikið og þið teljið ykkur þurfa (magnið á dressingunni miðast við 3 meðalgulrætur og ca 1/3 úr meðalstórum hvítkálshaus) . Saman við þessa blöndu setjið þið svo ca 2 msk fínhakkaðan lauk.
Dressing:
- ½ bolli majones (já það dugar ekkert annað – þetta er alvöru)
- Tæplega 1/3 bolli sykur
- ½ bolli mjólk
- 3 msk sítrónusafi
- 1 ½ msk edik (hvítvíns eða venjulegt borðedik)
- ½ tsk salt
- Pipar að smekk
Hrærið þessu öllu vel saman og hellið yfir grænmetisblönduna. Kælið í ca 2 tíma áður en þið borðið.