Kryddkjúklingur frá Perú

Uppskriftir að perúvískum kryddkjúklingum fóru sem eldur úr sinu yfir austurströnd Bandaríkjanna fyrir nokkru en þetta er afbrigði af hinni perúsku Pollo alla Brasa-uppskrift eða grilluðum kjúkling.

Innihald

  • 1 stór kjúklingur
  • 1/3 dl hvítvín
  • 1/2 dl hvítvínsedik
  • 4-5 pressaðir hvítlauksgeirar
  • 2 msk paprikukrydd
  • 2 tsk cumin
  • safi úr hálfri límónu
  • 1/3 dl olía
  • salt og pipar

Aðferð
Blandið öllu saman og setjið ásamt kjúklingnum í plastpoka, t.d. stóran frystipoka. Makið kryddleginum þannig að hann þeki kjúklinginn vel og nái helst undir húðina. Geymið í ísskáp í 12-24 klukkustundir.

Takið kjúklinginn út um klukkustund áður en hann er eldaður. Grillið á teini við miðlungshita í um klukkustund eða eldið í ofni við 150 gráður  í allt að eina og hálfa klukkustund.

Berið fram með bökuðm kartöflubátum eða hrísgrjónum og kaldri sósu sem samanstendur af einni dós af sýrðum rjóma, 2 msk Dijon-sinnep og safa úr hálfri lime.

Deila.