Við settum saman smá matarboð fyrir sunnudagsblað Morgunblaðsins. Þar notuðum við bæði gamlar uppskriftir af vefnum og nýjar. Þemað var franskt-ítalskt og með þessu voru borin fram vín sem fjallað er um í nýju vínbókinni, Vín -frá þrúgu í glas.
Risotto, humar og önd eru í miklu uppáhaldi hjá Vínótekinu og því varð lendingin sú að gera risotto með humar og kúrbít í forrétt. Svona til gamans þá var líka útbúin humarkryddolía sem gaf risottoinu nýja vídd.
Aðalrétturinn voru franskar andarbringur með rauðvínssósu, einn af uppáhaldsréttunum. Með bringunum og rauðvínssósunni steiktum við nýjar íslenskar kartöflur, forsoðnar í nokkrar mínútur, skornar í bita og steiktar upp úr andarfitunni sem kemur af bringunum. Og síðan auðvitað heimalagað rauðvínssoðið rauðkál.
Eftirrétturinn var síðan smá tilbrigði við klassíska uppskrift, þ.e. franska súkkulaðimús. Höfðum rekist á þetta líka unaðslega dökka súkkulaði með appelsínu (Valor) í Hagkaup og var það notað í músina, gaf henni skemmtilegt tvist.