Bolludaginn, rétt eins og sprengidag og öskudag, má rekja til kjötkveðjuhátíðarinnar, sem haldin er hátíðleg í kaþólskum ríkjum. Í Danmörku er þessi hátið fastelavn. Þar er mikil bolluhefð og hún barst til Íslands með dönskum bökurum á öldum áður, löngu eftir að Íslendingar sögðu skilið við kaþólsku.
Svona gerir maður klassískar danskar bolludagbollur eða fastelavnsboller:
Deigið:
- 350 g hveiti
- 150 g smjör
- 50 g pressuger
- 1,5 dl mjólk
- 1 egg
- 1/2 tsk salt
- 2 msk sykur
Fyllingin:
- 2 eggjarauður
- 1 msk vanillusykur
- 3 msk hveiti
- 2,5 dl mjólk
- 2 msk sykur
- 200 g marsipan
Blandið saman smjöri og hveiti. Bætið við sykri og salti. Leysið gerið upp í volgri mjólkinni. Blandið saman við hveitið ásamt egginu. Leyfið deiginu að lyfta sér í 45 mínútur.
Á meðan deigið lyftir sér er fyllingin útbúin. Pískið saman vanillusykri, sykri, eggi og mjólk í potti. Hitið nánast upp að suðu og bætið þá hveitinu saman við. Látið malla í smá stund þar til fyllingin hefur þykknað og pískið vel allan tímann.
Hnoðið deigið og og mótið síðan sextán bollur úr. Skerið marsipan í sextán bita og stingið ofan í hverja bollu. Láttið bollurnar lyfta sér í um klukkustund. Setjið um matskeið af fyllingu á hverja bollu og lokið með deigi þannig að það fljóti ekki út. Setjið bökunarpappír á plötu og raðið bollunum á.
Hitið ofninn í 220 gráður. Bakið í 12 mínútur. Skreytið með bráðnu súkkulaði eða glassúr.