Tabbouleh er vinsælt og gott meðlæti með mat í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku. Það er til í ýmsum útgáfum en þessi er upprunninn frá Líbanon.
- 3 dl búlgur
- 2 búnt flatlaufa steinselja, söxuð
- 1 búnt vorlaukur
- 4 þroskaðir og fínir tómatar, saxaðir
- 3 sítrónur,safinn pressaður
- 3/4 dl ólífuolía
- salt og pipar
Sjóðið búlgur skv. leiðbeiningum. Leyfið að kólna aðeins.
Saxið grænmetið og kryddjurtirnar fínt og setjið í skál. Pressið safann úr sítrónunum yfir og blandið saman. Hellið olíunni yfir og blandið saman. Saltið og piprið.
Blandið búlgur saman við.