Pasta með ítölskum kjötbollum og gráðostasósu

Kjötbollur og pasta í góðri sósu eru vinsæl samsetning. Hér eru bollurnar gerðar á svipaðan hátt og ítalskar pylsur og bragðmikil sósan með gráðaosti, hvítvíni og óreganó.

Kjötbollurnar

  • 600 hakkað svínakjöt (t.d. grísahnakki)
  • 4 pressaðir hvítlauksgeirar
  • 1 msk fennel
  • 1/2 tsk chiliflögur
  • skvetta af Sambuca (má sleppa)
  • klípa Cayennepipar
  • salt og pipar

Blandið öllu saman og mótið mjög litlar kjötbollur. Hver þeirra á að vera rétt um munnbiti.

Sósan

  • 2 dl hvítvín
  • 85 g rifinn gráðaostur
  • 2,5 dl rjómi
  • væn lúka af söxuðu fersku óreganó

Hitið olíu á pönnu og steikið kjötbollurnar í 5-8 mínútur. Hellið þá hvítvíninu út á pönnuna og látið malla með í um 2-3 mínútur. Þá er rjómanum, gráðaostinum og óreganó bætt saman við. Látið malla á miðlungshita í um 10-12 mínútur eða þar til að sósan hefur þykknað vel.

IMG_5644

 

Á meðan kjötbollurnar og sósan eru eldað er pasta soðið. Penne hentar t.d. vel. Þegar sósan er tilbúin er pastanum blandað saman við sósuna og kjötbollurnar. Berið fram með nýrifnum Parmesan-osti eða Pecorino.

Gott ítalskt rauðvín með, t.d. Isole e Olena Chianti Classico.

 

Fleiri uppskriftir að kjötbollum má svo finna hér.

Deila.