Carmenere er framtíðin
Gabriel Salas getur ekki kvartað yfir að leiðast í vinnunni. Hann er mikill vínáhugamaður um vín og var í öðrum útskriftarárgangi úr nýjum vínþjónaskóla í Chile. Frá árinu 2003 hefur hann starfað fyrir stærsta vínfyrirtæki Chile, Concha y Toro sem raunar er einnig það stærsta í heimi.