Hvítlaukspizza er kannski ekki heil máltíð en frábær til að hafa með öðrum smáréttum – eða þá bara til að narta í á meðan maður klárar fleiri pizzur með öðru áleggi.
Það er margt á ferðinni hér. Kjúklingurinn tekur í sig bragðið úr kryddjurtunum og víninu og margs konar kryddjurtir koma við sögu í sósunni. Augnbaunirnar eða Black Eyed Peas kóróna síðan réttinn.
Það er ekki alltaf hægt að ganga að kálfakjöti vísu í kjötborðunum. En þegar það býðst er um að gera að stökkva á það. Hér eru kálfasneiðarnar eldaðar með furuhnetum og blandaðar saman við pasta.
CousCous eða kúskús er stöðugt meira notað í íslenskum eldhúsum. Í Maghreb-ríkjum Norður-Afríku, Marokkó, Túnis og Alsír, er kúskús jafnsjálfsagður hluti hins daglega mataræðis og pasta á Ítalíu og hrísgrjón í Kína.