Dýrasta kampavín sögunnar

Dýrasta kampavínsflaska sögunnar var slegin á uppboði á Álandseyjum síðastliðinn föstudag. Um var að ræða flösku af Veuve Clicquot-kampavíni árgerð 1841 sem fannst í skipsflaki á síðastliðnu ári. Flaskan var sleginn á 30 þúsund evrur eða um fimm milljónir króna.

Uppboðið fór fram í Maríuhöfn á Álandseyjum. Þangað mættu sex hundruð manns en einnig var tekið við tilboðum í gegnum net og síma. „Við erum upp með okkur yfir að hafa slegið heimsmetið og mjög ánægð með hvað uppboðið gekk vel,“ segir Britt Lundberg, næstráðandi landsstjórnarinnar á Álandseyjum í tilkynningu frá landsstjórninni.

Flaskan fannst í júlí í fyrra í flaki skips sem sokkið hafði fyrir utan strendur Álandseyja á þar síðustu öld. Alls var 145 flöskum bjargað úr flakinu, allt kampavín frá Veuve-Clicquot, Juglar og Heidsieck. Ástand þeirra var að sögn sérfræðinga ótrúlega gott og vínið enn neysluhæft eftir að hafa legið í kulda og myrkri í tæpar tvær aldir.

Flaska af Juglar var líka boðin upp á uppboðinu og var slegin á 24 þúsund evrur, sem hefði verið heimsmet ef flaskan af Veuve Clicquot hefði ekki farið á hærra verði.

Deila.