Kartöflusalat með stökku beikoni

Kartöflusalat er hægt að gera á óendanlega vegu. Hér er það stökksteikt beikon sem gefur tóninn.

Hráefni:

  • 800 g kartöflur
  • 150 g beikon
  • 3 sellerístönglar
  • 1 laukur
  • 1 dós sýrður rjómi (10%)
  • 2 harðsoðin egg
  • 2 msk Dijon-sinnep
  • 2 msk vínedik
  • 2 dl sýrðar gúrkur, saxaðar fínt
  • 2 tsk sykur
  • 2 tsk sellerífræ
  • 1/2 tsk Cayennepipar

Aðferð

  1. Sjóðið kartöflurnar. Flysjið og skerið í teninga.
  2. Skerið lauk og sellerí í litla teninga. Setjið í pott með sjóðandi vatni í 1 mínútu. Hellið í sigti. Kælið.
  3. Skerið beikonið í litla bita. Gott er að geyma pakkann í frysti í um klukkustund áður en beikonið er skorið. Hitið olíu á pönnu og steikið beikonibitana á miðlungshita þar til þeir eru orðnir stökkir. Rúmar fimm mínútur. Hellið olíunni frá og þerrið bitana á eldhúspappír.
  4. Blandið saman sýrðum rjóma, söxuðum sýrðum gúrkum, sinnepi, sellerífræjum, vínediki og Caynne-pipar
  5. Blandið kartöflum, lauk og sellerí saman við sýrða rjómann.
  6. Blandið beikonbitunum saman við.
  7. Skerið egginn í eggjaskera, fyrst langsum og síðan þversum. Blandið saman við.

Geymið í ísskáp áður en salatið er borið fram.

Deila.