Aðstæður til vínræktar í Oregon á vesturströnd Bandaríkjanna henta Búrgundarþrúgunum tveimur, Pinot Noir og Chardonnay, einstaklega vel og það var einmitt þar sem að Búrgundarvínhúsið Drouhin ákvað að fjárfesta og byggja upp vínrækt. Búrgundarvínin frá Drouhin eru mjög hátt skrifuð og það sama á við um bandarísku vínin þeirra.
Og það verður að segjast eins og er að þetta Chardonnay-vín frá Oregon minnir um margt á hágæða Búrgundarvín frá Cote d’Or, en er þó á sama tíma afskaplega bandarískt. Þykkur, þroskaður ávöxtur, perur og epli, maukuð og sæt, eldspýtustokkur, reykur og vanilla í nefi, töluvert eikað en á „franskan“ hátt fremur en kalifornískan. Feitt og smjörkennt í munni, fágað og þykkt, sýran undirliggjandi, heldur víninu uppi, gefur því kraft og líf án þess að vera mjög áberandi. Fimm ára vín en enn ungt og mun halda áfram að þroskast. Virkilega flott. Með humar hvort sem er grilluðum eða humarsúpu, þorsk með „beurre blanc“-sósu eða jafnvel hvítu kjöti.
5.499 krónur