Campo Viejo Tempranillo 2011

Nær öll Rioja-vín eru gerð að langmestu leyti úr rauðvínsþrúgunni Tempranillo. Engu að síður hafa nokkur vínhús brugðið á það ráð að auðkenna vín sem „Tempranillo“ en með því er verið að gefa til kynna að það sé þrúgan og ávöxturinn sem er í fyrirrúmi en ekki geymslan á tunnum líkt og í hinum klassísku vínum héraðsins.

Þetta er vín þar sem eikin og ávöxturinn spila vel saman, það er mjög kryddað, nokkuð eikað, í nefi sprittaður ávöxtur, kirsuber, negull, mjög mjúkt í munni, heldur þó ferskleika.

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.