Altos er lítið „boutique“-vínhús í RIoja Alavesa og víngerðarmenn þess hafa starfað áður hjá ekki óþekktari vínhúsum en Chateau Haut-Brion í Bordeaux og Pingus í Ribera del Duero.
Dökkt, svarblátt á lit. Ungt, ágengt, margþætt, ávöxturin svartur, krækiber, sólber, þurrkuð blóm, vanilla. Mjög þurrt, tannískt með nokkuð kröftugum ávexti, kaffi, breiðir vel úr sér þegar að það opnar sig. Við mælum hiklaust með því að þessu víni sé umhellt til að það njóti sín til fulls. Mjög flott fyrir verð, þolir vel geymslu.
2.295 krónur. Frábær kaup.