Fischer Gruner Veltliner 2012

Vínhús Fischer-fjölskyldunnar er með þeim þekktari í Thermenregion suður af Vínarborg og framleiðir jaftn hin ágætustu hvítvín sem rauðvín. Austurrísk hvítvín eiga sér vaxandi hóp aðdáenda sem hafa uppgötvað ferskleika þeirra og þokka og er þar ekki síst hinni einstöku þrúgu Gruner Veltliner um að þakka.

Þetta er léttur, ungur og þægilegur Gruner Veltliner, mild angan af perum og melónu, ferskt, nokkuð sýrumiðkið, vottur af hvítum pipar. Fínn fordrykkur eða með léttum sjávarréttum.

1.999 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.