Vín – umhverfis jörðina á 110 flöskum

Bókin Vín – umhverfis jörðina á 110 flöskum er komin í verslanir. Höfundur bókarinnar er Steingrímur Sigurgeirsson, sem ritað hefur um vín og vínmenningu um árabil í Morgunblaðið og á Vínótekið. Það er Crymogea sem gefur út en bókin er myndskreytt af sannkölluðu landsliði ungra teiknara, þeim Rán Flygenring, Siggu Björg og Lóu Hjálmtýsdóttur sem gæða vínin 110 lífi á myndrænan hátt. Þessi bók er sannkallað listaverk.

vin 1

 

Í tilkynningu frá útgefanda segir:

Það er gömul speki hjá grónum vínræktar- og bjórgerðarþjóðum, að ef ætlunin sé að drekka bæði vín og bjór og halda haus skuli vínið koma á hæla bjórnum. Þessa viska aldanna réði því líka að á hæla metsölubókarinnar Bjór kemur nú stórvirkið Vín. Heimur vínsins er margbrotinn og fjölskrúðugur, enda er hvert vín einstakt. Það er afrakstur veðurs og vinda, jarðar og gróðurs, umhyggju og natni, hefða og hugvits. Fáir núlifandi menn í Norður-Atlantshafi þekkja þennan heim jafn náið og Steingrímur Sigurgeirsson sem hefur um áratugaskeið frætt samferðarmenn sína um unaðssemdir vínsins og bragðað á jafnvel sjaldgæfustu veigum jarðar. Hvort sem það er rautt eða hvítt, freyðandi eða sætt, bleikt eða styrkt: aldrei kemur lesandinn að tómum kofunum hjá Steingrími. Hann opnar 110 vínflöskur, lýsir uppruna og einkennum, og leiðir þekkingarþyrsta lesendur með sér í töfrandi heimsreisu.

Deila.