Chateau la Sauvageonne er ein af eignum Gérard Bertrand í Suður-Frakklandi og er ekrur Sauvageonne að finna á sillum í 300 metra hæð í hæðunum norðaustur Montpellier. Bertrand hefur á undanförnum árum verið að færa sig út í lífeflda ræktun (biodynamic) og hafa ekrur Sauvageonne verið lífefldar frá árinu 2012. Þrúgurnar sem eru ræktaðar í Sauvageonne eru Syrah og Grenache og nálægðin við hafið og hæðin yfir flæðarmáli býr til einstaklega flott ræktunarskilyrði sem tryggir ferskan og flottan ávöxt.
Þetta er ungt vín og það það þarf tíma til að opna sig, umhellið gjarnan. Dökkur, villtur berjaávöxtur, berjasteinar, blýantsoddur, nokkuð tannískt. Kryddað og flott.
2.969 krónur. Frábær kaup.