Lauren Miquel L’Artisan Chardonnay 2014

IMG_0094Suður-franska vínhúsið Laurent Miquel hóf sögu sína árið 1791 þegar Miquel-fjölskyldan keypti eignina Cazal Viel í Languedoc sem hafði verið gerð upptæk nokkrum árum áður í frönsku byltingunni líkt og aðrar eignir í eigu kirkjunnar. Hún ræktar nú vín víða í Languedoc og vínin í L’Artisan línunni koma frá nokkrum AOC-svæðum.

L’Artisan Chardonnay er milt og þægilegt hvítvín, sítrus, græn epli, melóna og vanilla úr eikinni en vínið hefur legið tæpt hálft ár á tunnu. Í munni þurrt, eikin skýr og ávöxturinn tær, ferskt.

70%

2.299 krónur. Mjög góð kaup.

  • 7
Deila.