Gerard Bertrand er sá víngerðarmaður sem líklega hefur gert mest fyrir orðspor suður-franskra vína á síðustu árum og vínin hans eru undantekningarlaus vel gerð og vönduð.
2014 Syrah einkennist af dökkum berjum í nefi, sólberjum og krækiberjum, þurrt, kryddað, smá apótekaralakkrís, , dimmt og jarðbundið.
2.299 krónur. Mjög góð kaup.