Terruyno-vínin eru meðal allra bestu vín chilenska vínrisans Concha y Toro og eru gerð úr þrúgum af tilteknum bletti innan einnar ekru. Carmenere-þrúgurnar sem notaðar voru til framleiðslu á þessu víni koma þannig af bletti sem nefndur er Block 27 af ekrunni Peumo í Cachapoal í Rapel-dalnum en þessi vín hafa reglulega verið tilnefnd sem einhver bestu Carmenere-vín landsins.
Mjög dökkt, mjög ungt, rétt að byrja að sýna sig. Kryddaður og dökkur ávöxtur, pipraður, svört ber, plómur, sólber, eikin áberandi og kröftug, tannískt, ungt.
4.999 krónur. Mjög góð kaup. Gefið góðan tíma. Umhellið. Vín til að geyma í 3-5 ár. Vín fyrir bragðmikið rautt kjöt.