Agassac er fallegt Chateau eða vínhús á Haut-Médoc svæðinu í Bordeaux, flokkað sem Cru Bourgeois en þau vín eru oft með bestu kaupunum. Þau eru stór og mikil en ekki eins stór og mikil þegar kemur að verði og vín frá mörgum öðrum svæðum Médoc.
Klassískur, nettur M’edoc. Liturinn enn djúpur, svarfjólublár, angan af sólberjum, vindlakassa, súkkulaði og nýmöluðu, dökkristuðu kaffi, Enn ungt yfirbragð en farið að mýkjast, vel balanserað, þétt og mjúk tannín, langt eftirbragð. Virkilega vel gert og flott vín í þessum verðflokki.
90%
3.999 krónur. Frábær kaup.
-
9