Clacson Grenache-Syrah-Mourvedre 2015

Clacson-vínin eru suðurfrönsk og það á líka við um þrúgurnar sem eru notaðar í þetta vín, hin klassíska blanda úr þrennunni Grenache, Syrah og Mourvedre sem að Ástralir gerðu fræga á sínum tíma.

Dökkrauður litur, rauð ber áberandi í nefi, rifsber, kirsuber, berin þroskuð, sæt, allt að því sultuð, ávöxturinn mjúkur í munni, sætur, léttur, milt og þægilegt Miðjarðarhafsvín.

70%

1.999 krónur. Mjög góð kaup. Með ostum eða léttum kjötréttum.

  • 7
Deila.