Góð Cabernet Sauvignon-vín frá Napa Valley í Kaliforníu eru í flokki þeirra bestu sem framleidd eru og hafa í gegnum tíðin oft velgt risunum frá Bordeaux undir uggum. Þau eru hins vegar oft afskaplega dýr og því ánægjulegt að geta fundið hágæða Napa-vín á viðráðanlegu verði eins og þetta frá Louis M. Martini. Það hefur líka ítrekað verið nefnt sem eitt af bestu kaupunum í Napa-vínum hjá ritum á borð við Wine Advocate.
Liturinn er djúpur, svarfjólublár, klassískur Cabernet í nefi, ríkjandisólberjasafi, míneralískt yfirbragð, eikað með reyk og vanillu, stíft, kröftugt, flottur, tannískur strúktúr
90%
4.698 krónur. Frábær kaup. Með hreindýri og annarri villibráð.
-
9