1000 Stories er kalifornískt vínhús, í eigu Fetzer sem fyrir sitt leyti er í eigu Concha y Toro, sem sérhæfir sig rauðvínum sem hafa legið á eikartunnum er áður hafa verið notaðar undir Bourbon. Fyrir því er gömul hefð í Kaliforníu en þetta var engu að síður nýjung á markaðnum þegar að hugmyndin kom upp hjá víngerðarteyminu hjá Fetzer fyrir nokkrum árum, enda höfðu öll vínhús fyrir löngu hætt notkun á Boubon-tunnum. Fyrst um sinn framleiddi 1000 Stories vín úr Zinfandel-þrúgunni en fyrr á þessu ári kynnti það til sögunnar vínið Prospectors Proofed úr Cabernet Sauvignon. Þetta er mikið vín, áfengisprósentan er heil 15% þannig að það er ágætt að umgangast það varlega. Sultuð ber í nefinu, sólber og bláber, mjúkt með sætri eik, vanillu og karamellu. Það er léttara og ferskara en maður á von á.
3.650 krónur. Mjög góð kaup. Hugsanlega mætti reyna þetta með hangikjöti eða mat með sætu meðlæti.
-
8