Coto Real er eitt af toppvínunum frá El Coto, nánar tiltekið er þetta einnar ekru vín frá undirsvæðinu Rioja Alta. Vínið var sett á tunnur eftir víngerjunina og lá á eikinni í tvö ár áður en við tók eins og hálfs árs geymsla á flösku. Það er nú orðið fimm ára og farið að mýkjast og sýna byrjandi þroska. Liturinn er enn dökkur og djúpur og eikaráhrifin leyna sér ekki, sætir kaffitónar og dökkt súkkulaði, sultaður kirsuberja og sólberjaávöxtur undir, öll áferð vínsins í munni þykk og mjúk, þægilega ferskt. Kröftugt og kryddað.
90%
4.299 krónur. Frábær kaup. Með góðri steik.
-
9