Vínin sem fá Gyllta glasið 2025

Keppnin um hvaða vín hljóta Gyllta  glasið 2025 fór fram á dögunum en það eru Vínþjónasamtök Íslands sem að venju skipuleggja þessa keppnissmökkun. Verðflokkur vína í keppni í ár er frá 2.990 kr til 5.000 kr og völdu vínbirgjar vínin. Þetta var síðari hluti smökkunar ársins og voru vín norðan við miðbaug tekin fyrir fyrir að Norður-Ameríku undanskilinni en vín þaðan voru í vorsmakki Gyllta glasins.

 Vínin voru smökkuð blint af sérstakri dómnefnd sem Vínþjónasamtökin boðuðu til á Reykjavík Natura.   

Yfirdómari var eins og fyrri ár Alba E. H. Hough margfaldur Íslandsmeistari vínþjóna með sérstakri aðstoð frá vel völdu fagfólki og eiga þau þakkir fyrir að standa að stærstu blindmökkum sem fram fer á Íslandi ár hvert.

 5 hvítvín og 10 rauðvín hlutu Gyllta glasið 2025 þegar stigin höfðu verið talin saman. Vínin verða sérmerkt í Vínbúðum með merki Gyllta Glassins og gildir sú merking fyrir árganginn sem fékk verðlaunin.

 Verðlaunavínin

Hvítvín:

Ambace Fiano Chardonnay 2024, 3.497 kr

Gustave Lorentz Riesling 2023, 2.990 kr

Hugel Gentil 2023, 2.999 kr

Louis Jadot Couvent des Jacobins Chardonnay 2023, 3.999 kr

Willm Riesling Reserve 2024, 2.999kr

Rauðvín:

Baron de Ley „Finca Monasterio“ 2022, 4.599 kr

Castemondo Valpolicella Ripasso Superiore 2022, 2.999 kr

Carlos Serres Gran Reserva 2017, 3.886 kr

Corte Ciara Ripasso la Groletta 2023, 3.790 kr

Cotes du Rhone, Domaine Guigal 2022, 3.299 kr

Cubardi Primitivo 2022, 4.990 kr

Muriel Reserva 2019, 3.199 kr

Torres Purgatori 2022, 4.990 kr

Vidal Fleury Cotes du Rhone 2022, 2.999 kr

Zenato Valpolicella Superiore 2021, 2.990 kr

Deila.