Francois Allaines Pouilly Fuissé 2008

Vínin frá þorpinu Pouilly, syðst í Bourgogne, eru þekktasta birtingarmynd hvítra Búrgundarvína á Íslandi ásamt vínunum frá Chablis, nyrst í héraðinu. Eins og önnur hvít Búrgundarvín er þetta hreint Chardonnay.

Pouily-Fuissé 2009 frá Francois D’Allaines er svakalega flott vín, ávöxturinn djúpur og samþjappaður en á sama tíma ferskur og bjartur. Sultaður sítrónubörkur, Þykkt og massað í munni. gul melóna og ferskjur og einnig allt að því botrytis-kenndur ávöxtur með þurrkuðum apríkósum.

3.599 krónur.

 

 

Deila.