Ástralski framleiðandinn Grant Burge er tiltölulega lítið vínhús í fjölskyldueigu sem framleiðir virkilega frambærilega línu af vínum, allt frá einfaldari og ódýrari vínum upp í risavaxin ofurvín. Hér er eitt traust úr einni af ódýrari línunum.
Þessi Cabernet Sauvignon-Shiraz blanda frá Suður-Ástralíu er enn ung en farin að taka á sig flóknari mynd. Dökkur og þéttur ávöxtur, þroskuð og sæt sólber og bláber með krydduðum undirtón og vott af leðri. Flott grillvín.
2.250 krónur Góð kaup.