Beso de Vino Old vine Garnacha 2009

Vínin frá Beso de Vino eru dæmi um þá miklu gerjun sem nú á sér stað í spænskri vínrækt. Nútímaleg, svolítið nýjaheimsleg en jafnframt á traustum evrópskum grunni og á verði sem getur meira en keppt við vín Suðurhvelsins.

Víngerðarsvæðið heitir Carinena og er í héraðinu Aragon, skammt frá borginni Zaragoza. Svæðið á sér langa vínræktarsögu en þaðan streyma nú spennandi, ódýr vín. Þetta vín er framleitt úr vínþrúgum af gömlum Garnacha-vínið. Þungaviktarvín í sínum verðflokki, mjög þroskuð, allt að því sultuð kirsuber í nefi, lakkrís og eik með þéttum tannínum. Þykkt og margslungið í munni, safaríkur en þurr ávöxtur.

1.850 krónur. Mjög góð kaup, með bestu vínum í þessum verðflokki.

 

Deila.