Matarleikhús verður sett upp í Norræna húsinu daga 23. til 30 október. Sýnt verður verkið Völuspá – A Nordic Food Expedition sem er samstarfsverkefni leikhússins Republique í Kaupmannahöfn, Norræna hússins og Dill veitingastaðar. og byggist bæði á ævafornum textum Völuspár og norrænni matarmenningu.
Sýningin er sögð vera „ferðalag um heima skilningarvitanna þar sem mæri hefðbundinnar leiksýningar og máltíðar eru könnuð og þeim ögrað. Um er að ræða einstaka sýningu þar sem öll skilningarvitin spila saman, sjón, heyrn og tilfinning og svo auðvitað bragð og ilman, í nýrri og einstakri túlkun á spádómi völvunnar. Sýningin er sett upp sem ferðalag um fagra byggingu Alvars Aaltos og nánasta umhverfi hennar, hvert rými fyrir sig táknar hluta textans og réttir sýningarinnar draga þá merkingu sérstaklega fram.“
Maturinn í sýningunni er skipulagður af danska matreiðslumeistaranum Mette Sia Martinussen, sem hefur m.a. slegið í gegn með Madeleines Madteater í Kaupmannahöfn, og matreiðslumeistara Dill, Gunnari Karli Gíslasyni.
Að verkinu standa:
Hugmynd og sjónrænt efni: Dorte Holbek, Mette Sia Martinussen, Alette Scavenius, Martin Tulinius
Leikstjóri: Martin Tulinius
Hönnun sviðsmyndar: Dorte Holbek
Matreiðslumenn: Mette Sia Martinussen, Gunnar Karl Gíslason
Leikritahöfundur: Alette Scavenius
Verkið verður flutt dagana 23. október til 30. október 2011 og er einkum ætlað fullorðnum. 24 áhorfendur geta að hámarki tekið þátt í hverri sýningu. Miðar eru seldir á www.midi.is