Lamberti Chardonnay 2012

Hér er á ferðinni norður-ítalskt Chardonnay, nánar tiltekið frá Veneto-svæðinu. Ljóst á lit, sítrus, banani og ferskjur í nefi, smá anis. Ferskt í munni, ágætis sýra og þægilegur ávöxtur. Kannski ekki „karaktervín“ en vel gert, þægilegt og ljúft sumarvín.

1.799 krónur. Fín kaup á því verði og hálf auka stjarna fyrir hlutfall verðs og gæða.

Deila.