Adobe Carmenere Reserva 2012

Carmenere er að verða þjóðarþrúga Chile og hér er hún í lífrænt ræktuðum búningi frá Emiliana-vínhúsinu.

Liturinn dökkur og djúpur, svarfjólublár. Angan berjamikil, bláber, krækiber og lyng, kryddað vottur af kanil og svörtum pipar. Ungt, kröftugt og mikið í munni, ávöxturinn ágengur, harður, þarf smá tíma í glasi. Góð dýpt og lengd, Mikið vín fyrir peninginn.

1.999 krónur. Frábær kaup.

.

Deila.