Bestu kaup hjá Gambero Rosso

Virtasta vínrit Ítalíu, Gambero Rosso, gaf út á dögunum hver væru bestu kaupin í ítölskum vínum. Meðal þeirra vína sem hlutu þessa viðurkenningu er vín sem fáanlegt er hér á land, Leonardo Chianti 2010. Það kemur frá vínsamlagi í þorpinu Vinci í Chianti sem notar mikið tilvísanir í frægasta son þorpsins í gegnum tíðina, Leonardo da Vinci.

Fleiri vín frá sama framleiðanda eru einnig fáanleg hér s.s. hið stórgóða hvítvín Ser Piero Leonardo.

Deila.