Finca Las Moras Black Label Malbec 2012

Finca Las Moras er athyglisverður framleiðandi frá Argentínu, vínin eru ekki ræktuð í Mendoza líkt og flest argentínsk vín sem hafa verið á markaðnum hér á landi til þessa heldur í héraðinu San Juan.

Vínið er þétt, dökkt í nefi er eik áberandi, keimur af brenndum kaffibaunum, vanillu, sætur krækiberja- og sólberjasafi. Vínið  er þéttriðið og eikin gegnumgangandi,  vel samofin víninu, mjúk tannín, reykur, feitt og mjúkt.

2.499 krónur. Frábær kaup.

Deila.