Vínhúsið Spy Valley hefur verið með þeim mest spennandi á Nýja Sjálandi síðustu misserin. Í byrjun hét vínhúsið Johnson Estate enda stofnað af þeim Bryan og Jan Johnson árið 1993. Árið 2000 breyttu þau hins vegar nafninu í Spy Valley og er nafnið tilkomið vegna njósnastöðvar Bandaríkjamanna, sem er hluti af Echelon-kerfinu, í Wairau dalnum.
Þrúgan Pinot Noir nýtu sín ekki alls staðar, hún er dyntótt og erfið, jafnvel á heimaslóðunum í Búrgund í Frakklandi. Á Nýja-Sjálandi líður henni hins vegar vel og vínin eru oft merkilega góð. Þessi Pinot frá Spy Valley er þykkur, með dökkum, krydduðum ávaxtahjúp, þarna eru niðursoðin jarðaber, rabarbarasulta, kirsuberjabaka og kanill í nefi, vottur af kókos. Sitt lítið af hvoru.
2.990 krónur. Mjög góð kaup.